Gjaldskrá
Gjaldskrá Samskiptamiðstöðvar er að finna hér:
Táknmálsnámskeið A1 og A2, (30 kennslustundir hópkennsla, ásamt námsefni) - 38.400 kr. á mann.
Almenn táknmálsnámskeið, fyrir sérhópa (20 kennslustundir, ásamt námsefni) - 128.000 kr. fyrir hópinn.
Lágmarksgjald vegna túlkunar er ein klukkustund. Innheimta skal fyrir hvern byrjaðan hálftíma eftir það.
Fyrir útselda vinnu sérfræðings skal innheimta eftirfarandi:
Almenn ráðgjöf og túlkun, tímagjald - 10.134 kr.
Fyrirlestur, af fyrirlestraskrá - 19.821 kr.
Fyrirlestur, sérstaklega undirbúinn - 39.644 kr.
Rannsókn, greining og þýðing, tímagjald - 5.067 kr.
Þegar veita þarf túlkaþjónustu utan reglulegs skrifstofutíma Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra vegna óvæntra eða ófyrirséðra ástæðna eða atvika, skal innheimt tímagjald sem nemur þremur klukkustundum, að lágmarki.
Samskiptamiðstöð er heimilt að veita táknmálsfólki endurgjaldslausa túlkaþjónustu í daglegu lífi.
Táknmálstalandi einstaklingar geta óskað eftir táknmálstúlki í ýmsar aðstæður í daglegu lífi.
Samskiptamiðstöð er heimilt greiða vegna þess ferðakostnað táknmálstúlks utan Reykjavíkursvæðisins, á grundvelli sérstakrar fjárveitingar á fjárlögum ár hvert.
Við afgreiðslu beiðna á grundvelli þessarar heimildar skal gætt jafnræðis milli notenda þjónustunnar, með tilliti til þeirrar fjárveitingar sem til ráðstöfunar er á hverjum tíma.
Sé þörf á að afbóka pöntun um táknmálstúlkun þarf að senda tölvupóst á netfangið tulkur@shh.is með eftirfarandi upplýsingum:
Númer umsóknar
Nafn þess sem pantaði túlkunina
Dagsetning og tímasetning túlkunar
Afbóka þarf táknmálstúlkaþjónustu með 24 klukkustunda fyrirvara annars er rukkað lágmarksgjald sem samsvarar einni klukkustund skv. gjaldskrá.
Túlkun sem um hefur verið samið til lengri tíma þarf að segja upp með hálfs mánaðar fyrirvara.
Sé þörf á að túlkun á öðrum degi eða öðrum tíma dags þarf að skrá nýja pöntun. Ekki er tekið við pöntunum í gegnum fyrrgreint netfang.