Myndsímatúlkun er túlkun á símtölum milli táknmálstalandi og íslenskumælandi einstaklinga. Í myndsímtalinu er einnig túlkur sem er hlutlaus milliliður samtalsins.
Þjónustan er í boði milli klukkan 9 og 16 alla virka daga og ekki þarf að panta hana fyrirfram.
Hægt er að óska fyrirfram eftir sérstökum tíma í myndsímatúlkun, í forritinu, og reynt er að verða við þeim óskum sé þess kostur.
Í neyðartilvikum hafið samband við neyðarlínuna 112 sem sendir boð á túlk.
Hvernig á að panta
Opnar forritið SHH myndsímatúlkun
Velur að panta túlk
Bíður í röð
Færð samband við túlk og biður um þá aðstoð sem þú sækist eftir
Túlkur hefur samband við þann aðila, stofnun sem einstaklingur biður um
Túlkun á samtali hefst
Hægt er að skrá sig í gegnum vefsíðuna og einnig er appið aðgengilegt í App Store og Play Store.
Þjónustuaðili
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra